08.12.2008 14:04:33 / sperran
Nokk mikið umleikis um helgina.Sigga kom í mat á föstudag og bar hún allnokkuð lof á eldamennskuna.Það eina sem sett var út á fyrirfram, var að ekki mátti hafa ORA-grænar með lærissneiðunum
Þannig að hún var tilbeygð að koma með sínar eigin ferskar.Hvað er það?Það er ótækt að hafa ekki ORA úr dós grænar baunir með lærisneiðum! Þær voru reyndar til taks, en ekki opnaðar.
Renndi á "Grátmúrinn" árla laugardags,hann að leysa mig með fatagjöfum.Bolir og slíkt fleira.Lagði honum til 10-15 gamlar vinyl-plötur.Einhverjar mega teljast "klassíker",Uriah Heep m.a. Gestgjafinn veitti því svo athygli að ég var íklæddur "Tuddanum".Það er leðurjakki einn mikill sem hann hafði í Skotlandsferðinni frægu 1999,hjálpað mér að prútta niður um um munaði.Sögusagnir herma að í þennann jakka hafi farið einir fjórir nautgripir.Það má til sanns vegar færa,því eftir að hafa gengið í honum dagsstund, þá fer að gera vart við sig mikil eymsli í öxlum.Giska á að þyngdin sé a annan tuginn.Þessi svonefndi "Tuddi" kemur mikið við sögu í einni Lundúnaferð sem við félagarnir fórum.Sá atburðir er einhversstaðar skráður á víðlendum www.Nánar um það síðar.
Ég þáði síðan far hjá kalli niður á Austurvöll að hitta Siggu og taka þátt í mótmælunum.Fannst afleit mætinginn og fundurinn í styttra lagi.Gleður eflaust Dabba littla! Við gengum síðan upp í Hlíðar, með viðkomu á sýningu einni eða tveim.Litum við hjá Sveinbirni og frú á Skólavörðustígnum,gekk þar út með jólatré eitt lítið og tappatogara!
Lentum svo í kvöldverðaboði upp í Grafarvogi hjá vinafólki Siggu.
Gerði mér ferð á sunnudag til "Grátmúrsins" að endurheimta bifreiðina eftir allt "skrunið" síðastliðinn sólarhring.Þar tók á móti vinkona húsbóndans, hún "Glæný" eins og hann kallar hana.Mér var boðið Brunch hið snarasta og áttum svo gagnmiklar samræður um m.a. ættfræði, mannlíf á Vestfjörðum og fleira.Seyðisfjörður kom líka eitthvað við sögu.Við svo búið hélt ég heim,með viðkomu í Glósölum til að berja augum framför framkvæmda þar í húsi.Mun ég koma þar að verki seinna í vikunni.
»
27.11.2008 15:35:14 / sperran
Leiðin liggur á eftir til Diddu & Bill, því þau sómahjón, Kiddý & Sonny Barr eru stödd á klakanum og verða þar í mat.Leiðir okkar allra lágu saman í fyrra út í Köben.Eftirminnilegir dagar þar, líkt og meðfylgjandi mynd segir til um.Komið þið fagnandi!
Ætla svo að leyfa mér að vera í fríi á morgun.Ekki af svo sem neinu sérstöku tilefni.Verð bara heima á morgun.
Ég held ég labbi heim........
»
24.11.2008 16:13:47 / sperran
Var inntur eftir eftir því í morgun hvort ég væri eitthvað slæmur í bakinu, því hollinginn gæfi það til kynna."Já,var nefnilega í sumarbústað um helgina"! Það hló spyrjandinn, kannaðist við þetta víst. Hvort sem er viðbrigðin við öðru rúmi eða það að þeir sem útbúa þessa annars ágætu bústaði, séu einhverjir kvalarar,veit ég ekki.En hvað um það, við Sigga áttum velgóða helgi við Úlfljótsvatnið.Ríkti lítil sem enginn kreppa þar.
Sá mér til mikillar skelfingar að ég er búinn að vera með helgaráskrift að Mogganum í tæp tvö ár, án þess að gera mér grein fyrir því.Alltaf tekinn 1800 kall af reikningnum og blaðið sent á gamalt heimilisfang í Firðinum! Fljótur að strika þann ósóma út! Þetta er náturúlega bilun að hafa ekki rekið augun í þetta fyrr.Kæruleysi og auðvitað metnaðarleysi í leiðinni!
Spakmæli dagsins er því: Dýr þykja ólesin orð, er aðrir fá njóta.

»
20.11.2008 11:34:06 / sperran
Kemst reyndar ekki á Flúðir í þetta sinn, en okkur áskotnaðist hús á Úlffljótsvatni um helgina.Þökk sé Starfsmannafélaginu.Fjölbreytt dagskrá bíður okkar væntanlega,þannig að engum ætti að leiðast.Skrun?
Áður enn lengra er haldið, þá langar mig á þessum vettfangi að koma á framfæri miklu þakklæti til hennar systur minnar,fyrir aðstoðina um daginn og þar öll skiptin á undan.Ástarþakkir frá "Geemish" til "Lopp"!
Mín bíður svo múrverk í kvöld hjá Dóru, skeiðin tekin á loft en á ekki von á að notkun kjullu komi til.Hvað er það?

»
11.11.2008 17:05:25 / sperran
Þegar maður er búinn að eyða síðasta 1/2 tímanum í vinnuni að gerja saman einu(að mér fannst) gerjuðu bloggi og horfa svo á það "vanish like a fart in the wind" eftir að hafa þrykkt á snarvitlausan takka, þá segi ég bara: I is outa here!
»
23.10.2008 16:56:37 / sperran
Þ og annað þ ....eru þau lík? Það bregst ekki að þegar Siggi Héðins er að vinna, þá er það þessi kímnigáfu sem ræður ríkjum.Líkt og fyrir nokrum árum þegar hann skrifaði orðið "veður" á fjölmarga pappírssnepla.Sagði þetta vera "veður á miðum". - Meistari í "útúrsnúningum og ég hef margt af þeim kalli lært.
Læs ða innis.
»
21.10.2008 16:43:33 / sperran
Óvíst hvað þessi mynd á að fyrirbyggja....kannski er maðurinn að vinna hjá Vegagerðinni? Kanna ástand vega...eða í línudansi?Látum það liggja á milli hluta í bili.Alltént afar skrýtnir fótaburðir.
Sperran hefur nýverið ekki upplifað áður jafnmikla menningarhelgi,líkt og þá sem síðast leið undir lok.Föstudagskvöldið vorum við Sigríður að hlýða á Sinfóníuhljómsveitina flytja nokkur verk eftir Jean Sibelius þann finnska.Þetta var endurgjaldslaust af hálfu Sinfóníunar í tilefni þess að ekkert varð úr för þeirra til Japans í tónleikaferð, sem hafði verið 2 ár í undirbúningi.Japanir gugnuðu á síðustu metrunum,töldu íslendinga ekki trúverðuga í ljósi síðustu atburða í fjármálaheiminum!Hvað er það?-Þeir vissu að mínu viti ekki hverju þeir voru að missa af!
Menningarhelginni lauk á einu af sviðum Borgarleikhússins.Fýsn hét stykkið eða Girnd minnir mig.Sjálft leikritið lifir einungis í minningunni sem eitt það mest dapurlega af þeim sem ég hef séð og hef ekki séð mörg!
Sunnudaginn skroppið til (þjáningar!)systur að sjá Spurs enn á ný lúta í gras!..."Mótlæti er til að sigrast á, sameinaðir við sigrum þá"..söng Bubbi á sínum tíma um eitt Stórveldi....Jamm-Fer vonandi að heyra kveðið oftar; " Oh when the Spurs go marching on,oh when the Spurs go marching on"......það kreppir víða að segi ég.
Flottasta um helgina af öðru ólöstuðu, var að klára að hjálpa Lindu & Leif.Þetta hafðist að lokum, Sperran búinn að draga þetta alltof lengi!En við náðum tilætluðum árangri og ber að fagna því!
Tutto!
»
13.10.2008 09:26:52 / sperran
»
03.10.2008 09:11:15 / sperran

Bikarúrslit á morgun,vonandi að Fjölnismenn þurfi ekki að lúta í snjó, frekar en í gras! Hvernig verður það? Allavega þá hefst undirbúningur okkar um hádegi í dag, taka niður skilti og koma þeim inn í Laugardal.Tökum svo til við í kvöld að gera salinn klárann fyrir Vesturbæjarballið um á laugardagskvöldið.Áður en að því kemur þá verður dinner fyrir leikmenn,stjórnina og starfsmenn, ásamt mökum.Ekki séð matseðilinn þó.Orðrómur þó um að Bjöggi G. verði M.C. þetta kvöld.Sel það ekki dýrara en ég keypti það.
»
18.09.2008 14:20:52 / sperran
Á síðustu metrunum...eða eins og Jón Páll hafði á orði: "I was slipping a lott onða lest fjú metters!"....Við og Gummi "Ámóti" ætlum að renna upp á Skipaskaga á eftir og líta augum leik sem í daglegu tali kallast KRÍA,nema hvað í þessu tilfelli er það í raun ÍAKR þar sem leikurinn er uppfrá en ekki vesturfrá. Í ljósi þess að Skagamenn eru í slæmum málum þessa dagana, þá mætti kannski prufa að setja V fyrir framan og A fyrir aftan ÍAKR?
Af Sperrunni er annars nokkuð gott að frétta og reyndar rúmlega það, án þess þó að fara að útblása sig nánar um það.Segi kannski helst það að "andvirði" manns hafi farið hækkandi upp á síðkastið.Sperruvísitalan er í hærra laginu.
Guð gefi okkur góðan dag
»
09.09.2008 16:44:54 / sperran

Lítt "Sperrað" um hríð.Von á bragabót við því skjótt.Ekki seinna enn í síðasta lagi fyrir fréttir.
»
18.08.2008 17:30:32 / sperran
Það er Ófeigur á næsta föstudagsmorgun...early departure...fyrsta hanagal.Verðum fram á sunnudag að vinna eitthvað og læti.Þó verður ekki komið við á "Cafe du Norde"-síðasti starfsdagur er víst á miðvikudag og ekki opnuð fyrr enn í vor.Ahhh!
Þökkum viðskiptin á liðnu ári.
»
13.08.2008 11:32:23 / sperran
Ákvað að fresta restinni af fríinu fram í mánuðinn eitthvað...taka það eflaust eftir fyrirhugaða ferð í Ófeig um aðra helgi.Þó finnst mér ég vera eins og "hrakinn heyflekkur" í dag!
Við Ragnar bróðir tókum okkur til og kláruðum loks að glerja þessa glugga í Sörlaskjólinu og fengum lof fyrir frá viðkomandi.
Fór síðan í grænmetissúpu til Siggu.
»
08.08.2008 16:01:03 / sperran
Ragna frænka gekk inn á ÓL-leikvang í dag, fyrst úr okkar fjölskyldu sem nær því takmarki.Allir að springa úr stolti vegna þess og hún á svo að hefja leik í nótt, um klukkan 01.20 í einliðaleik kvenna.Sendum henni baráttukveðjur.
Annars, þá datt ég inn á Clapton-tónleikana í kvöld,Tabs bauð mér miða með sér og verða m.a. þar einnig faðir og bróðir Ólympíufarans.Kíkjum svo á Rögnu eftir það.
Búinn að liggja í fríi mest heima síðustu daga.
»
Síður:
1 2 3 ...
7